28 hérna megin...
Þessa setningu fékk ég að heyra hundrað sinnum frá Sigurði á laugardagsnóttina...enda kallinn orðinn 28 ára, til hamingju með það gamli minn
Það gerist nú mest lítið hjá mér eitthvað, en það er svo sem ekkert nýtt hahahha ![]()
Reyndar fór á skíði á sunnudaginn, tók Söru litlu og Júlíu með mér, það var svaka stuð hjá okkur gellunum í brekkunum, nú er bara svo að vera dugleg að fara, loksins búin að vígja árskrotið hahhaha
Ég verð nú bara að segja að ég er mjög sátt við HM, þó svo að árangurinn hefði getað verið betri, stöngin inn og þá hefði farið allt öðruvísi, en ég elska samt alexander og bara reyndar flest alla í þessu landsliði okkar
Djöfull var nú gaman að geta horft svona mikið á handbolta, jaðraði bara við það að ég saknaði þess að spila hann ekki lengur hahha
Við magnaðar gellur verðum ekki lengur magnaðar heldur hamraðar gellur... Gengum til liðs við Hamrana nú á dögunum og hamrarnir því þokkalega orðið flottasta liðið í bænum með bæði meistaraflokk karla og kvenna undir einu nafni, klöppum fyrir því![]()
Jæja nenni ekki meir í bili, en bara minna ykkur á það að ég á afmæli eftir 51 dag, þannig að byrjiði að spara ;)
5 athugasemdir